Hagar hf.: Niðurstaða víxlaútboðs 21. september 2023


Hagar hf. luku í dag útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki HAGA240328.

Heildartilboð í flokkinn námu samtals 2.160 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 10,00% - 10,925%.

Tilboðum að fjárhæð 1.880 m.kr. var tekið á 10,28% flötum vöxtum.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 28. september 2023. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.


Nánari upplýsingar veita:

Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki, sími: 522 4000, asgrimur.gunnarsson@fossar.is
Arnar Geir Sæmundsson, Fossar fjárfestingabanki., arnar.saemundsson@fossar.is

Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, geg@hagar.is