Reginn hf.: Könnun og staðfesting staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum


PwC er staðfestingaraðili vegna REG250948 og almenns tryggingafyrirkomulags. Hlutverk hans er m.a. að kanna og staðfesta útreikninga útgefanda í skýrslu um fjárhagslegar kvaðir.

PwC hefur nú framkvæmt könnun á útreikningum útgefanda á fjárhagslegum kvöðum skuldabréfaflokksins REG250948 og almenna tryggingafyrirkomulagsins.

Niðurstaða könnunar PwC staðfestir að skuldabréfaflokkurinn REG250948 og almenna tryggingafyrirkomulagið standist allar fjárhagslegar kvaðir þann 30.6.2023.

Jafnframt hefur Reginn tekið saman yfirlit yfir stöðu á grænum fjármögnunarramma (Annual Impact Report) fyrir árshlutann.


Frekari niðurstöður eru í meðfylgjandi viðhengjum.


Nánari upplýsingar veitir:

Rósa Guðmundsdóttir – Fjármálastjóri– rosa@reginn.is – S: 844 4776

Viðhengi



Attachments

Reginn hf. - PwC staðfesting 30.6.2023 Sértæka - skýrsla um fjárhagslegar kvaðir Reginn hf. - PwC staðfesting 30.6.2023 Almenna - skýrsla um fjárhagslegar kvaðir Reginn hf. - AnnualImpactReport_JUNE2023