Reginn hf.: Niðurstöður hluthafafundar Regins hf. 12. október 2023


Hluthafafundur Regins hf. var haldinn fimmtudaginn 12. október 2023, klukkan 16:00, á The Reykjavík EDITION, Bryggjugötu 8, 101 Reykjavík.

Samþykkt var heimild til handa stjórn félagsins til þess að hækka hlutafé þess um allt að kr. 1.670.351.049 til þess að efna uppgjör á valfrjálsu yfirtökutilboði í allt hlutafé í Eik fasteignafélagi hf. Sú breyting á sér stað á  4. gr. samþykkta félagsins að núgildandi ákvæði í 2. mgr. 4. gr. samþykkta félagsins verður fellt brott í heild sinni og þess í stað bætist við 4. gr. eftirfarandi málsgrein:

„Stjórn félagsins er heimilt að hækka hlutafé félagsins um allt að kr. 1.670.351.049 að nafnverði með áskrift nýrra hluta til þess að efna uppgjör á valfrjálsu yfirtökutilboði í allt hlutafé í Eik fasteignafélagi hf. Áskriftargengi hinna nýju hluta skal vera í samræmi við skilmála valfrjálsa yfirtökutilboðsins. Nýútgefnir hlutir veita réttindi frá skráningardegi hlutafjárhækkunar og skulu sömu ákvæði og kveðið er á um í samþykktum þessum að öðru leyti gilda um nýútgefna hluti í félaginu. Stjórn félagsins er enn fremur heimilt að breyta samþykktum þessum í samræmi við það sem leiðir af hlutafjárhækkun. Hluthafar skulu falla frá forgangsrétti samkvæmt 34. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Heimildin skal gilda í tólf mánuði frá samþykkt.“

Mætt var á hluthafafundinn fyrir 74,84% hlutafjár. Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Enginn greiddi atkvæði á móti tillögunni. Setið var hjá fyrir 3,86% atkvæðisréttar í félaginu.

Meðfylgjandi eru uppfærðar samþykktir Regins.

Viðhengi



Attachments

Reginn hf. - Samþykktir