Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu uppgjörs 2. ársfjórðungs 2023/24


Hagar hf. birta uppgjör 2. ársfjórðungs, þ.e. fyrir tímabilið 1. júní til 31. ágúst 2023, eftir lokun markaða, miðvikudaginn 18. október nk.

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn fimmtudaginn 19. október kl. 08:30 þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.

Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið fjarfestakynning@hagar.is og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.

Fundinum verður streymt og er skráning á fundinn hér: https://www.hagar.is/skraning.

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.