Eimskip: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 41. viku 2023 keypti Eimskip 99.000 eigin hluti fyrir kr. 47.305.500 samkvæmt neðangreindu:

DagsetningTímasetning viðskiptaKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð
11.10.202314:3433.000480,00015.840.000
12.10.202310:0233.000477,00015.741.000
13.10.202310:0733.000476,50015.724.500
Samtals 99.000 47.305.500
     

Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í kauphöll þann 10. október 2023.

Eimskip átti 1.725.320 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 1.824.320 hluti sem nemur 1,09% af heildarhlutafé félagsins.

Eimskip hefur keypt samtals 99.000 hluti skv. núgildandi áætlun, eða sem nemur 4,6% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir á grundvelli hennar. Kaupverð er samtals kr. 47.305.500 sem nemur 4.73% hámarksfjárhæðar skv. núgildandi áætlun.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 2.150.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en kr. 1.000.000.000. Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 9. mars 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veita
Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla,
sími: 844 4752, netfang: investors@eimskip.com