Hagar hf.: Niðurstöður í endurkaupum á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi


Hagar hf. ákváðu að taka tilboðum fyrir 14.925.373 hluti á genginu 67,0 í endurkaupum sem tilkynnt var um fimmtudaginn 19. október 2023. Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er þriðjudagurinn 24. október.

Endurkaupin eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. MAR (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum), sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Hagar hf. eiga 22.119.617 hluti eða sem nemur 2,00% af útgefnu hlutafé að loknum kaupum á þeim bréfum sem um ræðir hér að ofan.

Nánari upplýsingar veitir:

Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., í síma 530-5500 eða á geg@hagar.is