Í tengslum við útboð sem haldið var 20. október stóð aðalmiðlurum til boða, samkvæmt 6. grein í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa, að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða.
| Flokkur | RIKB 26 1015 | RIKB 35 0917 |
| ISIN | IS0000034874 | IS0000035574 |
| Viðbótarútgáfa (nafnvirði) | 70.000.000 | 0 |
| Uppgjörsdagur | 25.10.2023 | |
| Samtals staða flokks (nafnvirði) | 48.191.000.000 | 8.640.000.000 |