Alma íbúðafélag hf.: tilkynning tengds aðila


Alma íbúðafélag hf.: tilkynning tengds aðila

Þann 12. október 2022 seldi Alma íbúðafélag hf. skuldabréf í nýjum flokki AL150424 að nafnverði 1.900 m.kr. Eignarhaldsfélagið Mata hf. eigandi 57% Langasjávar ehf. móðurfélags Ölmu íbúðafélags hf. keypti 500 m.kr. að nafnverði í skuldabréfaflokknum AL150424.

Í gær, þann 15. nóvember 2023 seldi Eignarhaldsfélagið Mata hf. skuldabréf fyrir 300 m.kr. að nafnverði í skuldabréfaflokknum AL150424.

Í morgun, þann 16. nóvember 2023 seldi Eignarhaldsfélagið Mata hf. skuldabréf fyrir 200 m.kr. að nafnverði í skuldabréfaflokknum AL150424.