Eimskip: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 46. viku 2023 keypti Eimskipafélag Íslands hf. 165.000 eigin hluti fyrir ISK 73.821.000 eins og hér segir:

DagsetningTími viðskiptaKeyptir hlutir Gengi á hlutKaupverð
13.11.202309:4433.000447,0014.751.000
14.11.202310:4933.000445,0014.685.000
15.11.202309:5633.000447,0014.751.000
16.11.202310:5033.000448,5014.800.500
17.11.202310:4833.000449,5014.833.500
 Samtals165.000 73.821.000

Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 11. október 2023, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 10. október 2023.

Eimskip átti 2.484.320 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 2.649.320 hluti sem nemur 1,58% af heildarhlutafé félagsins.

Eimskip hefur nú keypt samtals 924.000 hluti skv. núgildandi áætlun, eða sem nemur 42,98 % af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir á grundvelli hennar. Kaupverð samtals er 428.835.000  sem nemur 42,88 % hámarksfjárhæðar skv. núgildandi áætlun.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða í kauphöll Nasdaq  Iceland hf. að hámarki keyptir 2.150.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meira en 1.000 milljónir króna . Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 9. mars 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, og reglugerð framkvæmdastjórnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir
Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang: investors@eimskip.com