| Flokkur | RIKV 24 0221 | RIKV 24 0515 |
| ISIN | IS0000035541 | IS0000035699 |
| Gjalddagi | 21.02.2024 | 15.05.2024 |
| Útboðsdagur | 27.11.2023 | 27.11.2023 |
| Uppgjörsdagur | 29.11.2023 | 29.11.2023 |
Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisvíxlana þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag.
Að öðru leyti er vísað til almennrar lýsingar íslenskra ríkisvíxla og almennra útboðsskilmála á heimasíðu Lánamála ríkisins.
Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Freyr Harðarson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9630.