Reginn hf.: Framlenging gildistíma valfrjáls tilboðs í hlutafé Eikar fasteignafélags hf. til 19. febrúar 2024


Vísað er til opinbers tilboðsyfirlits, dags. 10. júlí 2023, sbr. viðauka, dags. 14. september 2023, í tengslum við valfrjálst tilboð Regins hf. („Reginn“ eða „félagið“) í allt hlutafé Eikar fasteignafélags hf. („Eik“) („valfrjálsa tilboðið“).

Með vísan til 6. mgr. 103. gr. laga nr. 108/2007 um yfirtökur hefur Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands í dag samþykkt beiðni Regins um að framlengja gildistíma valfrjálsa tilboðsins um tíu vikur frá 11. desember nk. eða fram til kl. 13:00 þann 19. febrúar 2024.

Umrædd framlenging á gildistíma valfrjálsa tilboðsins kemur til í ljósi þess að félagið telur líkur á því að rannsókn Samkeppniseftirlitsins á fyrirhuguðum viðskiptum verði ekki lokið þann 11. desember nk. sem var fyrri gildistími valfrjálsa tilboðsins. Þann 2. nóvember sl. tilkynnti Samkeppniseftirlitið Regin um að það teldi ástæðu til frekari rannsóknar á samkeppnislegum áhrifum viðskiptanna og að rannsókn Samkeppniseftirlitsins færi í svokallaðan annan fasa. Með hliðsjón af stöðu rannsóknar Samkeppniseftirlitsins þótti rétt að framlengja gildistíma valfrjálsa tilboðsins um tíu vikur.

Framlenging á gildistíma valfrjálsa tilboðsins hefur engin áhrif á þá sem þegar hafa samþykkt tilboðið og þurfa þeir hluthafar Eikar sem þegar hafa samþykkt tilboðið ekki að aðhafast neitt.

Framlenging á gildistímanum felur ekki í sér breytingar á valfrjálsa tilboðinu.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Regins hf., sími: 821 0001