Alma íbúðafélag hf.: Útboð á víxlum 7. desember 2023


Alma íbúðafélag hf.: Útboð á víxlum 7. desember 2023

ALMA íbúðafélag hf. heldur lokað útboð á þriggja mánaða óverðtryggðum víxlum (AL 24 0315) og sex mánaða óverðtryggðum víxlum (AL 24 0615) fimmtudaginn 7. desember nk. Víxlarnir eru óveðtryggðir.

Arctica Finance hf. hefur umsjón með útboðinu og kynningu þess fyrir hugsanlegum fjárfestum. Heildarútgáfuheimild í útboðinu er allt að 2.000 m.kr. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu samþykktu flötu vöxtum. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og verða skráðir á Nasdaq Iceland. Alma íbúðafélag hf. áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Skila skal inn tilboðum á netfangið m@arctica.is fyrir klukkan 16:00 fimmtudaginn 7. desember 2023. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 15. desember 2023.

Útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c- og d-liðar 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og 1. mgr. 3. gr. laga nr. 14/2020 um sama efni. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds flokks skuldaskjals eru birt á vefsíðu félagsins: http://www.al.is/company/investors/bond-issuance/.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri, sigurdur@al.is.