Niðurstöður skiptiútboða íbúðabréfaflokkanna HFF150644 og HFF150434


ÍL-sjóður lauk í dag tveimur skiptiútboðum þar sem eigendum íbúðabréfaflokksins HFF150644 var boðið að skipta á bréfunum fyrir skuldabréf í verðtryggða ríkisbréfaflokknum RIKS 33 0321 og eigendum íbúðaflokksins HFF150434 var boðið að skipta á bréfunum fyrir skuldabréf í verðtryggða ríkisbréfaflokknum RIKS 30 0701.

Tilboð að fjárhæð 11.069.000.000 að nafnvirði bárust í verðtryggða flokkinn RIKS 33 0321 og var tilboðum að fjárhæð 11.069.000.000 að nafnvirði tekið á fyrirfram ákveðna verðinu 102,150.  Á móti kaupir ÍL-sjóður til baka 9.798.017.270 að nafnvirði í flokknum HFF150644 á fyrirfram ákveðna verðinu 100,00.

Tilboð að fjárhæð 16.651.000.000 að nafnvirði bárust í verðtryggða flokkinn RIKS 30 0701 og var tilboðum að fjárhæð 12.150.000.000 að nafnvirði tekið á fyrirfram ákveðna verðinu 102,400.  Á móti kaupir ÍL-sjóður til baka 16.287.685.500 að nafnvirði í flokknum HFF150434 á fyrirfram ákveðna verðinu 100,00.

Í ljósi mikillar eftirspurnar í skiptiútboðum dagsins mun ÍL-sjóður huga að frekari útboðum sem kynnt verða síðar.

Nánari upplýsingar veita:

Steinþór Pálsson f.h. ÍL-sjóðs, sími 616-0200, netfang verkefnisstjornil@fjr.is

Starfsmenn Lánamála ríkisins f.h. umsjónaraðila, sími 569-9635, 569-9679, netfang lanamal@lanamal.is