Eimskip: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 52. viku 2023 keypti Eimskipafélag Íslands hf. 99.000 eigin hluti fyrir ISK 47.833.500 eins og hér segir:

DagsetningTími viðskiptaKeyptir hlutir Gengi á hlutKaupverð
27.12.202310:0233.000482,0015.906.000
28.12.202309:5633.000483,5015.955.500
29.12.202310:2533.000484,0015.972.000
Samtals  99.000 47.833.500

Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 11. október 2023, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 10. október 2023.

Eimskip átti 3.441.320 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 3.540.320 hluti sem nemur 2,11% af heildarhlutafé félagsins.

Eimskip hefur nú keypt samtals 1.815.000 hluti skv. núgildandi áætlun, eða sem nemur 84,42% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir á grundvelli hennar. Kaupverð samtals er 836.055.000 sem nemur 83,61% hámarksfjárhæðar skv. núgildandi áætlun.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða í kauphöll Nasdaq  Iceland hf. að hámarki keyptir 2.150.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meira en 1.000 milljónir króna . Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 9. mars 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, og reglugerð framkvæmdastjórnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir
Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang: investors@eimskip.com