Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu uppgjörs 3. ársfjórðungs 2023/24


Hagar hf. birta uppgjör 3. ársfjórðungs, þ.e. fyrir tímabilið 1. september til 30. nóvember 2023, eftir lokun markaða, fimmtudaginn 11. janúar nk.

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn sama dag, þann 11. janúar kl. 16:00, þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.

Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið fjarfestakynning@hagar.is og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.

Fundinum verður streymt og er skráning á fundinn hér: https://www.hagar.is/skraning.

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.