Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum fimmtudaginn 11. janúar kl. 15:00. Boðnir verða til sölu óverðtryggði flokkurinn LBANK CB 29 og nýr verðtryggður flokkur, LBANK CBI 30.
Áætlaður uppgjörsdagur er 18. janúar 2024.
Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.
Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.