Reginn hf.: Hluthafafundur í Reginn hf. verður haldinn 2. febrúar 2024


Stjórn Regins hf. („Reginn“ eða „félagið“) boðar til rafræns hluthafafundar í félaginu sem haldinn verður föstudaginn 2. febrúar næstkomandi klukkan 15:00. Hluthafar eru beðnir um að kynna sér vandlega leiðbeiningar um atkvæðagreiðslu og rafræna þátttöku að neðan og í meðfylgjandi viðhengi.

Dagskrá fundarins er svohljóðandi:

  1. Kosning endurskoðunarfélags

Stjórn leggur til við hluthafafund að Deloitte ehf. verði kjörið sem endurskoðunarfélag félagsins.

  1. Önnur mál, löglega fram borin.

Fundurinn og atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara fram í gegnum Lumi AGM. Allir hluthafar sem taka þátt með rafrænum hætti, eru hvattir til þess að hlaða niður smáforriti Lumi AGM í eigin snjalltæki, en jafnframt geta þeir greitt atkvæði í gegnum vefslóð Lumi AGM. Rafræn þátttaka jafngildir mætingu á fundinn og veitir rétt til þátttöku í honum að öðru leyti.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, eru beðnir um að skrá sig á skráningarsíðu fundarins: https://www.lumiconnect.com/meeting/Reginn2024egm eigi síðar en klukkan 15:00 þann 31. janúar 2024 eða tveimur dögum fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á.

Gögn vegna fundarins verða aðgengileg á skrifstofu félagsins og á vefsvæði tengdu hluthafafundi á heimasíðu félagsins, www.reginn.is/fjarfestavefur, en endanleg dagskrá og tillögur verða aðgengilegar að minnsta kosti einni viku fyrir hluthafafund, sbr. 18. gr. samþykkta félagsins.

Meðfylgjandi er fundarboð, tillaga og greinargerð stjórnar með nánari upplýsingum.

Stjórn Regins hf.

Viðhengi



Attachments

Reginn hf. - Dagskrá og tillögur -  09012024 Reginn hf. - Auglýsing -09012024