Eimskip: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 3. viku 2024 keypti Eimskip 38.000 eigin hluti fyrir kr. 17.975.500 samkvæmt neðangreindu:

DagsetningTími viðskiptaKeyptir hlutir Gengi á hlutKaupverð
15.1.202409:3633.000473,5015.625.500
16.1.202410:075.000470,002.350.000
 Samtals38.000 17.975.500


Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 11. október 2023, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 10. október 2023.

Eimskip átti 3.837.320 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 3.875.320 hluti sem nemur 2,31% af heildarhlutafé félagsins.

Kaupum samkvæmt endurkaupaáætluninni er nú lokið.

Eimskip hefur nú keypt samtals 2.150.000 hluti skv. núgildandi áætlun, eða sem nemur 100% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir á grundvelli hennar. Kaupverð samtals er 997.861.000  sem nemur 99,79% hámarksfjárhæðar skv. núgildandi áætlun.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða í kauphöll Nasdaq  Iceland hf. að hámarki keyptir 2.150.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meira en 1.000 milljónir króna . Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 9. mars 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, og reglugerð framkvæmdastjórnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir

Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang: investors@eimskip.com