Í tengslum við útboð sem haldið var 26. janúar stóð aðalmiðlurum til boða, samkvæmt 6. grein í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa, að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða.
| Flokkur | RIKB 26 1015 | RIKB 42 0217 |
| ISIN | IS0000034874 | IS0000033884 |
| Viðbótarútgáfa (nafnvirði) | 812.000.000 | 480.000.000 |
| Uppgjörsdagur | 31.01.2024 | 31.01.2024 |
| Samtals staða flokks (nafnvirði) | 67.332.400.000 | 63.292.000.000 |