ÍL-sjóður: Skiptiútboð í tengslum við kaup á  HFF150434 gegn afhendingu á RIKS 33 0321 og RIKS 26 0216


Föstudaginn 2. febrúar nk. mun ÍL-sjóður halda tvö skiptiútboð.

Fyrra útboðið verður haldið milli kl. 9:30 og 10:30 og býðst ÍL-sjóður til að kaupa HFF150434 (XS0195066575) á hreina verðinu 100,00, en til skýringar jafngildir verðið 3,78% ávöxtunarkröfu, gegn afhendingu á verðtryggða ríkisbréfaflokkinum RIKS 33 0321 (IS0000021251) á hreina verðinu 102,700, en til skýringar jafngildir verðið 2,66% ávöxtunarkröfu. ÍL-sjóður býðst til að kaupa HFF150434 bréf gegn afhendingu á allt að 1.520.000.000 kr. að nafnvirði í RIKS 33 0321. Niðurstaða skiptiútboðsins verður tilkynnt með opinberum hætti kl. 11:30 á útboðsdegi. 

Í seinna útboðinu sem verður haldið milli kl 14:00 og 15:00 býðst ÍL-sjóður til að kaupa HFF150434 á hreina verðinu 100,00, en til skýringar jafngildir verðið 3,78% ávöxtunarkröfu, gegn afhendingu á ríkisbréfaflokkinum RIKS 26 0216 (IS0000030732) á hreina verðinu 96,240, en til skýringar jafngildir verðið 3,45% ávöxtunarkröfu. ÍL-sjóður býðst til að kaupa HFF150434 bréf gegn afhendingu á allt að 4.570.000.000 kr. að nafnvirði í RIKS 26 0216. Niðurstaða skiptiútboðsins verður tilkynnt með opinberum hætti kl. 16:00 á útboðsdegi. 

Kauptilboð í viðkomandi ríkisbréfaflokka skulu send inn sem nafnverðsfjárhæð.

Uppgjörsdagur viðskiptanna er þriðjudagurinn 6. febrúar 2024.

ÍL-sjóður áskilur sér rétt til að samþykkja að hluta eða hafna öllum tilboðum.

Umsjónaraðili með framkvæmd skiptiútboðanna er deild Lánamála ríkisins hjá Seðlabanka Íslands. Aðalmiðlurum ríkisverðbréfa sem gert hafa þátttökusamning við ÍL-sjóð (Arion banki hf., Fossar fjárfestingarbanki hf., Íslandsbanki hf., Kvika banki hf. og Landsbankinn hf.), er boðið að hafa milligöngu um viðskiptin og verður Bloomberg viðskipta- og útboðskerfið notað. 

Eigendum HFF-bréfa er bent á að snúa sér til aðalmiðlara hafi þeir áhuga á að taka þátt í skiptiútboðunum.

Útboðsskilmálar skiptiútboðanna eru í meðfylgjandi viðhengjum.

Nánari upplýsingar veita:

Steinþór Pálsson f.h. ÍL-sjóðs, sími 616-0200, netfang verkefnisstjornil@fjr.is

Starfsmenn Lánamála ríkisins sem umsjónaraðili útboðanna í síma 569-9635 og 569-9679, netfang lanamal@lanamal.is

Viðhengi



Attachments

Útboðsskilmálar - fyrra skiptiútboð 02.02.2024 Útboðsskilmálar - seinna skiptiútboð 02.02.2024