ÍL-sjóður: Niðurstaða skiptiútboðs HFF150434/RIKS 26 0216



ÍL-sjóður hefur lokið skiptiútboði þar sem eigendum íbúðabréfaflokksins HFF150434 var boðið að skipta á bréfunum fyrir skuldabréf í verðtryggða ríkisbréfaflokknum RIKS 26 0216.

Tilboð að fjárhæð 4.833.000.000 að nafnvirði bárust í verðtryggða flokkinn RIKS 26 0216 og var tilboðum að fjárhæð 4.570.000.000 að nafnvirði tekið á fyrirfram ákveðna hreina verðinu 96,240.  Á móti kaupir ÍL-sjóður til baka 4.841.610.609 að nafnvirði í flokknum HFF150434 á fyrirfram ákveðna hreina verðinu 100,00. Skipt var á bréfum að markaðsvirði 6.074.459.355 kr.

Nánari upplýsingar veita:

Steinþór Pálsson f.h. ÍL-sjóðs, sími 616-0200, netfang  verkefnisstjornil@fjr.is

Starfsmenn Lánamála ríkisins sem umsjónaraðili útboðsins í síma 569-9635 og 569-9679, netfang lanamal@lanamal.is