Eik fasteignafélag hf.: Samkeppniseftirlitið kynnir félaginu frumniðurstöðu samrunarannsóknar


Eik fasteignafélagi hf. hefur borist andmælaskjal frá Samkeppniseftirlitinu vegna samrunatilkynningar Regins hf. í tengslum við valfrjálst yfirtökutilboð þess til hluthafa Eikar fasteignafélags. Andmælaskjalið er ritað í þeim tilgangi að auðvelda samrunaaðilum að nýta andmælarétt sinn skv. stjórnsýslulögum og stuðla að því að rétt ákvörðun verði tekin í málinu eins og segir í skjali eftirlitsins.

Samandregið er það frummat Samkeppniseftirlitsins að samruni Regins og Eikar fasteignafélags hindri virka samkeppni, og hann krefjist að öllu óbreyttu íhlutunar af hálfu eftirlitsins. Af samrunaskrá og fyrirliggjandi gögnum verði ekki séð að möguleg hagræðing eða annar ávinningur af samrunanum sé með þeim hætti að hann vegi upp á móti skaðlegum áhrifum samrunans, og að hann muni skila sér til viðskiptamanna samrunaaðila komi samruninn til framkvæmdar. Þá geti Samkeppniseftirlitið ekki lagt til grundvallar áform sameinaðs fyrirtækis um svokallaða straumlínulögun með sölu fasteigna eftir samrunann, enda virðist um að ræða óskuldbindandi áform á hugmynda- eða undirbúningsstigi, auk þess sem breytingarnar virðist einkum varða atvinnuhúsnæði sem fellur utan þeirra svæða þar sem áhrifa samrunans gætir helst.

Frummat Samkeppniseftirlitsins er byggt á fyrirliggjandi málsgögnum, felur ekki sem slíkt í sér bindandi stjórnvaldsákvörðun og kann að taka breytingum eftir því sem rannsókninni vindur fram. Samkvæmt stjórnsýslulögum geta málsaðilar nýtt sér andmælarétt áður en bindandi stjórnvaldsákvörðun verður tekin í málinu. Frestur til þess að óska sáttaviðræðna, leggja fram mögulegar tillögur að skilyrðum og senda athugasemdir við andmælaskjalið er til 21. febrúar nk.