Reginn hf.: Framlenging gildistíma valfrjáls tilboðs í hlutafé Eikar fasteignafélags hf. til 15. apríl 2024


Vísað er til opinbers tilboðsyfirlits, dags. 10. júlí 2023, sbr. viðauka, dags. 14. september 2023, í tengslum við valfrjálst tilboð Regins hf. („Reginn“ eða „félagið“) í allt hlutafé Eikar fasteignafélags hf. („Eik“) („valfrjálsa tilboðið“).

Með vísan til 6. mgr. 103. gr. laga nr. 108/2007 um yfirtökur hefur Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands samþykkt beiðni Regins um að framlengja gildistíma valfrjálsa tilboðsins um átta vikur frá 19. febrúar nk. eða fram til kl. 13:00 þann 15. apríl 2024.

Umrædd framlenging á gildistíma valfrjálsa tilboðsins kemur til í ljósi þess að Reginn telur líkur á því að greining félagsins á frumniðurstöðum Samkeppniseftirlitsins, sem bárust félaginu 7. febrúar síðastliðinn, verði ekki lokið þann 19. febrúar nk., sem var fyrri gildistími valfrjálsa tilboðsins. Reginn hefur frest til 21. febrúar nk. til að skila inn athugasemdum, óska eftir sáttaviðræðum og leggja fram tillögur að mögulegum skilyrðum til Samkeppniseftirlitsins, kjósi félagið svo. Með hliðsjón af því og lögbundnum málsmeðferðarfrestum í samrunamálum þótti rétt að óska eftir framlengingu á gildistíma valfrjálsa tilboðsins um átta vikur.

Framlenging á gildistíma valfrjálsa tilboðsins hefur engin áhrif á þá sem þegar hafa samþykkt tilboðið og þurfa þeir hluthafar Eikar sem þegar hafa samþykkt tilboðið ekki að aðhafast neitt.

Framlenging á gildistímanum felur ekki í sér breytingar á valfrjálsa tilboðinu.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Regins hf., sími: 821 0001