Sýn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 6 keypti Sýn 195.000 eigin hluti að kaupverði 9.386.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
5.feb15:04:3465.00048,43.146.000
6.feb09:33:2465.00048,23.133.000
8.feb10:58:1065.00047,83.107.000
Samtals 195.000 9.386.000
     

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. nóvember 2023.

Sýn átti 2.961.921 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 3.156.921 eigin hluti eða sem nemur 1,26% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sýn hefur keypt samtals 3.156.921 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,26% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 144.127.307 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 8.000.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 3,19% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 300.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 16. febrúar 2024, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Sýnar í gegnum netfangið fjarfestatengsl@syn.is