Eik fasteignafélag hf.: Birting ársuppgjörs 2023 þann 15. febrúar - Kynningarfundur 16. febrúar


Eik fasteignafélag birtir uppgjör sitt fyrir árið 2023 eftir lokun markaða fimmtudaginn 15. febrúar nk.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 16. febrúar nk. kl. 8:30 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 2. hæð. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum.
Fundinum verður einnig streymt beint en tengill á streymið verður sendur út samhliða birtingu uppgjörs. Markaðsaðilar geta sent spurningar fyrir fundinn á netfangið fjarfestatengsl@eik.is. Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.