Sýn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – Kaupum samkvæmt áætlun lokið


Í viku 7 keypti Sýn 195.873 eigin hluti að kaupverði 8.957.634 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
13.feb 14:34:15 65.000 47 3.055.000
14.feb 09:31:08 65.000 44,6 2.899.000
15.feb 14:42:03 873 45,4 39.634
16.feb 10:13:33 65.000 45,6 2.964.000
Samtals   195.873   8.957.634
         

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. nóvember 2023.

Sýn átti 3.156.921 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 3.352.794 eigin hluti eða sem nemur 1,34% af útgefnum hlutum í félaginu.

Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun er nú lokið. Sýn hefur keypt samtals 3.352.794 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,34% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 153.084.941 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni máttu nema að hámarki 8.000.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 3,19% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð mátti þó ekki vera hærra en 300.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 16. febrúar 2024, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Sýnar í gegnum netfangið fjarfestatengsl@syn.is