Ársreikningur SÍL hs. 2023



Sérhæfði hlutdeildarsjóðurinn SÍL hs. sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta á First North Iceland Fixed Income í apríl árið 2021.

  • Hagnaður varð af rekstri sjóðsins á árinu 2023 að fjárhæð 85 þús. kr. á árinu samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.
  • Eignir sjóðsins í árslok 2023 námu 5.324 millj. kr. og hrein eign sjóðsins nam 1 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Ársreikningurinn var endurskoðaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2023, efnahag hans 31. desember 2023 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2023, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is
Nánari upplýsingar veitir Anna Kristjánsdóttir í síma 444 7461, anna.kristjansdottir@stefnir.is


Viðhengi



Attachments

SÍL ársreikningur 31.12.2023