REITIR: Tilkynning um endurkaup á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi


Á aðalfundi Reita fasteignafélags hf. þann 8. mars 2023 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins.

Endurkaupin munu að hámarki nema 18.500.000 hlutum í félaginu, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Við endurkaupin skal hæsta leyfilega endurgjald fyrir hvern hlut ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.

Reitir hafa samið við Arion banka hf. um umsjón endurkaupanna. Kaupin fara fram samkvæmt öfugu tilboðsfyrirkomulagi og samkvæmt hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæsta verði sem verður tekið. Allir hluthafar Reita geta gert tilboð um að selja bréf sín til félagsins fyrir milligöngu Markaðsviðskipta Arion banka hf. Reitir áskilja sér rétt til að taka eða hafna hvaða tilboði sem er í heild eða að hluta.

Endurkaupin eru framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. MAR (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum), sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Tilboðum skal skila til Markaðsviðskipta Arion banka hf., sem einnig svara fyrirspurnum, á netfangið trading@arionbanki.is, merkt „Reitir endurkaup“ fyrir kl. 08:30, miðvikudaginn 28. febrúar 2024.

Niðurstöður verða tilkynntar í fréttakerfi Nasdaq Iceland fyrir kl. 9:30, miðvikudaginn 28. febrúar 2024. Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er föstudagurinn 1. mars 2024.

Útgefið hlutafé Reita er 745.638.233 hlutir og eru 23.638.233 hlutir eða 3,17% hlutafjár í eigu félagsins við upphaf endurkaupaáætlunarinnar.

Nánari upplýsingar veita:

Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á netfanginu einar@reitir.is

Markaðsviðskipti Arion banka í síma 444 7327 eða 444 7731