Mál er varða lánsfjármögnun á dagskrá borgarráðs 29. febrúar


Í borgarráði 29. febrúar nk. verða eftirfarandi mál á dagskrá er varða lánsfjármögnun Reykjavíkurborgar

  1. Heimild til að sækja um og hefja viðræður við Þróunarbanka Evrópuráðsins, CEB, um lánsfjármögnun.
  2. Tillaga um útgáfu á nýjum skuldabréfaflokkum.

Tilkynning um afgreiðslu borgarráðs verður birt um leið og hún liggur fyrir.

Nánari upplýsingar gefur:
Halldóra Káradóttir, sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs
netfang: halldora.karadottir@reykjavik.is
Sími: 411-1111