Alma íbúðafélag hf.: Útboð á víxlum 7. mars 2024


Alma íbúðafélag hf.: Útboð á víxlum 7. mars 2024

ALMA íbúðafélag hf. heldur lokað útboð á þriggja mánaða óverðtryggðum víxlum (AL 24 0615) og sex mánaða óverðtryggðum víxlum (AL 24 0915) fimmtudaginn 7. mars nk. Víxlarnir eru óveðtryggðir.

Arctica Finance hf. hefur umsjón með útboðinu og kynningu þess fyrir hugsanlegum fjárfestum. Heildarútgáfuheimild í útboðinu er allt að 2.000 m.kr. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu samþykktu flötu vöxtum. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og verða skráðir á Nasdaq Iceland. Alma íbúðafélag hf. áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Skila skal inn tilboðum á netfangið m@arctica.is fyrir klukkan 16:00 fimmtudaginn 7. mars 2024. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 15. mars 2024.

Útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c- og d-liðar 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og 1. mgr. 3. gr. laga nr. 14/2020 um sama efni. Tilkynning þessi er eingöngu sett fram í upplýsingaskyni og felur ekki í sér né er hún hluti af útboðinu eða boð um kaup eða áskrift á verðbréfum félagsins. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds flokks skuldaskjals eru birt á vefsíðu félagsins: http://www.al.is/company/investors/bond-issuance/.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri, sigurdur@al.is.