REITIR: Niðurstöður aðalfundar þann 6. mars 2024


Miðvikudaginn 6. mars 2024 var aðalfundur Reita fasteignafélags hf. haldinn á Hotel Reykjavík Natura. Fundurinn hófst kl. 15.00.

Tillögur þær sem lágu fyrir fundinum má finna á vefsíðu félagsins hér.

Niðurstöður fundarins urðu eftirfarandi:

1. Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár
Aðalfundur samþykkti ársreikning og samstæðureikning félagsins vegna ársins 2023.

2. Ráðstöfun hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsári
Tillaga stjórnar um að greiða út arð að fjárhæð 2,05 kr. fyrir hverja krónu nafnverðs útistandandi hlutafjár í félaginu vegna rekstrarársins 2023 var samþykkt. Arðgreiðsludagur verður þann 27. mars 2024, 7. mars 2024 er arðleysisdagur og 8. mars 2024 verður arðsréttindadagur.

3. Heimild til kaupa á eigin bréfum
Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um heimild til kaupa á eigin bréfum.

4. Tillaga um lækkun hlutafjár til jöfnunar á eigin hlutum
Tillaga um lækkun hlutafjár úr 745.638.233 kr. í 711.550.000 kr. og tilheyrandi breyting á 4. gr. samþykkta félagsins var samþykkt.

5. Starfskjarastefna félagsins
Aðalfundur samþykkti tillögur stjórnar um breytingar á starfskjarastefnu félagsins.

6. Tillaga um breytinar á starfsreglum tilnefningarnefndar
Aðalfundur samþykkti tillögur stjórnar um breytingar á starfsreglum tilnefningarnefndar.

7. Skipun nefndarmanna í tilnefningarnefnd
Aðalfundur staðfesti skipun Margretar Flóvenz, Berglindar Óskar Guðmundsdóttur og Hilmars G. Hjaltasonar í tilnefningarnefnd félagsins.

8. Tilnefning utanaðkomandi aðila í endurskoðunarnefnd
Aðalfundur tilnefndi Helgu Harðardóttur, endurskoðanda, sem utanaðkomandi aðila í endurskoðunarnefnd.

9. Kjör stjórnarmanna félagsins
Eftirtaldir aðilar gáfu kost á sér til setu í stjórn félagsins og voru þau sjálfkjörin: Anna Kristín Pálsdóttir, Elín Árnadóttir, Guðmundur Kristján Jónsson, Kristinn Albertsson og Þórarinn V. Þórarinsson.

10. Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfélags
Aðalfundur samþykkti að Deloitte ehf. yrði endurskoðunarfélag félagsins.

11. Ákvörðun um laun stjórnar, undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar fyrir komandi starfsár
Aðalfundur félagsins samþykkti að mánaðarleg stjórnarlaun fyrir komandi starfsár skuli vera 425.000 kr. fyrir stjórnarmenn  en laun stjórnarformanns verði tvöföld stjórnarlaun. Þóknun til formanns endurskoðunarnefndar verður 170.000 kr. á mánuði og til annarra nefndarmanna 100.000 kr. á mánuði. Þóknun til nefndarmanna í starfskjaranefnd verður 50.000 kr. á mánuði og til formanns nefndarinnar 90.000 kr. á mánuði. Þóknun til formanns þróunarnefndar verður 170.000 kr. á mánuði og til annarra nefndarmanna 50.000 kr. á mánuði. Fyrir störf í tilnefningarnefnd fær hvor nefndarmaður greiddar 850.000 kr. fyrir starfsárið, en formaður nefndarinnar fær greiddar 1.270.000 kr. fyrir starfsárið. Greiðslur til endurskoðenda félagsins skulu vera samkvæmt reikningi.

12. Önnur mál
Engin önnur mál voru tekin til afgreiðslu á fundinum og var honum slitið kl. 15.58.