Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar


Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVKN 35 1.

Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 1.010 m.kr. í flokkana.

Heildartilboð í RVK 32 1 voru samtals 260 m.kr. að nafnvirði á kröfunni 4,06%-4,17%. Ákveðið var taka tilboðum, samtals að nafnvirði 120 m.kr á ávöxtunarkröfunni 4,06%. Útistandandi fyrir útboð voru 32.733 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 960 m.kr. Heildarstærð flokksins er nú 32.853 m.kr. að nafnverði.

Heildartilboð í RVKN 35 1 voru samtals 750 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 8,40%-8,58%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 450 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 8,50%. Útistandandi fyrir útboð voru 28.750 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 960 m.kr. Heildarstærð flokksins er nú 29.200 m.kr. að nafnverði.

Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 12. mars.

Nánari upplýsingar veitir:


Bjarki Rafn Eiríksson
Skrifstofa fjárstýringar og innheimtu
Netfang: Bjarki.Rafn.Eiriksson@reykjavik.is