Alma íbúðafélag hf.: Útgáfa á víxlum


Alma íbúðafélag hf.: Útgáfa á víxlum

Alma íbúðafélag hf. hefur lokið sölu á víxlum í tveimur flokkum til 3ja og 6 mánaða. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 1.340 m.kr.

Alma hefur ákveðið að taka tilboðum að fjárhæð 860 m.kr. í 3ja mánaða óverðtryggða víxilinn með 11,05% vöxtum og 400 m.kr. í 6 mánaða óverðtryggða víxilinn með 10,99% vöxtum eða samtals 1.260 m.kr. Áður hafði félagið selt 220 m.kr. á 11,18% vöxtum í víxilinn AL240615. Heildarstærð útgáfunnar nemur því 1.080 m.kr.

Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudaginn 15. mars 2024.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri Alma íbúðafélag hf., í síma 848 5290 eða sigurdur@al.is