VÍS: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í tíundu viku 2024 keypti VÍS 2.700.000 eigin hluti fyrir kr. 49.490.000 eins og hér segir: 

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
4.3.202410:38:54500.00018,409.200.00024.250.000
4.3.202415:17:03500.00018,309.150.00024.750.000
5.3.202415:21:071.000.00018,3018.300.00025.750.000
6.3.202411:23:05200.00018,203.640.00025.950.000
8.3.202411:18:59500.00018,409.200.00026.450.000
  2.700.000 49.490.00026.450.000

Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 31. janúar 2024, sbr. tilkynningu á markað þann 24. janúar 2024.
  
VÍS hefur keypt samtals 25.300.000 hluti í félaginu sem samsvarar 84,33% af þeim eigin hlutum sem að hámarki var heimilt að kaupa samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 454.360.000. VÍS á nú samtals 26.450.000 hluti eða 1,39% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.906.700.000. 

Í endurkaupaáætluninni kemur fram að ekki verði keyptir fleiri en 30.000.000 hlutir. Fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en 500 milljónir króna að heildarkaupverði.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. 

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri, í síma 660-5260 eða með netfanginu fjarfestatengsl@vis.is