Ársreikningur Félagsbústaða 2023


Ársreikningur Félagsbústaða 2023

Stjórn Félagsbústaða hf. samþykkti ársreikning félagsins fyrir árið 2023 á fundi sínum í dag 12. mars.

Hagnaður vegna hækkunar á eignasafni

Hagnaður félagsins á árinu nam 1.383 m.kr. og er hann allur tilkominn vegna hækkunar á virði fasteignamats eigna félagsins. Hagnaðurinn verður ekki innleystur nema með eignasölu.

Sjóðstreymi Félagsbústaða sýnir að handbært fé frá rekstri var 1.205 m.kr. samanborið við 1.374 m.kr. árið áður. Afborganir langtíma lána námu 1.439 m.kr. Helstu kennitölur reikningsins eru:

  • Rekstrartekjur ársins námu 6.459 m.kr.
  • Afkoma fyrir matsbreytingu (EBITDA) nam 2.384 m.kr. eða 36,9% af rekstrartekjum
  • Matshækkun fjárfestingareigna á árinu námu 4.741 m.kr.
  • Virði fjárfestingareigna í lok ársins er 157.178 m.kr.
  • Eigið fé í lok tímabilsins er 85.149 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall í lok ársins er 53,7%
  • Vaxtaberandi skuldir í lok tímabils nema 62.009 m.kr.

Rekstur og afkoma

Rekstrartekjur Félagsbústaða á árinu 2023 námu 6.459 m.kr., er það aukning um 12,6% milli ára sem skýrist af hækkun leiguverðs vegna verðlagsbreytinga, aukins nýtingarhlutfalls eigna og stækkun eignasafnsins. Rekstur og viðhald eigna hækkar um 703 m.kr. eða um 26,0% á milli ára. Rekstrarhagnaðarhlutfall (EBITDA%) er 36,9% samanborið við 42,6% fyrir árið 2022.

Eignasafn og efnahagur

Heildareignir félagsins námu 158.583 m.kr. í lok árs en þær jukust um 6,2% frá ársbyrjun. Fjárfestingareignir jukust um 5,7% eða 8.466 m.kr., fjárfest var fyrir 3.270 m.kr. og matsbreyting nam 5.195 m.kr. Heildarskuldir nema 62.926 m.kr. og hækkuðu um 6.206 m.kr. á árinu. Eigið fé hækkaði um 1,65% á tímabilinu. Eiginfjárhlutfall í lok árs var 53,7% en 56,1% í lok árs 2022.

Skuldabréfaútboð

Félagsbústaðir eru með skráð skuldabréf í Kauphöll Íslands og fylgja þeim reglum sem gilda um skráð félög. Samþykktir félagsins kveða einnig á um fyrirkomulag ýmissa þátta í starfseminni og eru þær aðgengilegar á vefsíðu þess ásamt þeim lögum sem gilda um félagið.

Félagið fjármagnaði sig með bankaláni frá Íslandsbanka á árinu að fjárhæð 3.500 m.kr. en samhliða lántöku var eldra óverðtryggt lán hjá Íslandsbanka greitt upp. Nettó lántaka á árinu var því um 3.115 m.kr.

Undanfarin ár hefur félagið hefur fjármagnað fjárfestingar með útgáfu á félagslegum skuldabréfum í skuldabréfaflokknum FB100366 SB. Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður með ársfjórðungslegum jöfnum greiðslum til lokadags þann 10. mars 2066 og hann ber einfalda ábyrgð Reykjavíkurborgar. Alls hafa verið gefnar út 18.800 milljónir að nafnvirði í skuldabréfaflokknum. Flokkurinn er skráður á Sustainable Bond markaði Nasdaq Iceland.

Þróun eignasafns

Félagsbústaðir keyptu 61 fasteign á árinu 2023 en áform voru um að fjölga íbúðum um 75. Seldar voru 5 fasteignir og 3 bílskúrar á árinu.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri, sigrun@felagsbustadir.is, sími 520 1500

Viðhengi



Attachments

Ársreikningur Félagsbústaða 2023 Ársreikningur Félagsbústaða 2023 undirritaður Áhrifaskýrsla 2023