VÍS: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – lok endurkaupa


Í elleftu viku 2024 keypti VÍS 2.513.223 eigin hluti fyrir kr. 45.639.997 eins og hér segir: 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð (kr.) Eigin hlutir eftir viðskipti
11.3.2024 10:02:58 500.000 18,20 9.100.000 26.950.000
11.3.2024 14:41:58 500.000 18,15 9.075.000 27.450.000
12.3.2024 13:28:14 500.000 18,15 9.075.000 27.950.000
12.3.2024 14:44.36 500.000 18,15 9.075.000 28.450.000
13.3.2024 10:45:13 513.223 18,15 9.314.997 28.963.223
    2.513.223   45.639.997 28.963.223

Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 31. janúar 2024, sbr. tilkynningu á markað þann 24. janúar 2024. Endurkaupum er nú lokið.
  
VÍS hefur keypt samtals 27.813.223 hluti í félaginu sem samsvarar 92,71% af þeim eigin hlutum sem að hámarki var heimilt að kaupa samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 499.999.997. VÍS á nú samtals 28.963.223 hluti eða 1,52% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.906.700.000. 

Í endurkaupaáætluninni kemur fram að ekki verði keyptir fleiri en 30.000.000 hlutir. Fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en 500 milljónir króna að heildarkaupverði.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. 

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri, í síma 660-5260 eða með netfanginu fjarfestatengsl@vis.is