Hagar hf.: Útboð á víxlum 21. mars 2024


Hagar hf. efna til útboðs á víxlum fimmtudaginn 21. mars 2024. Boðnir verða til sölu víxlar í nýjum 6 mánaða flokki HAGA240925.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útboðinu og kynningu þess fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og sótt verður um skráningu þeirra í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Útboðið er  undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu víxlaflokksins og töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins: https://www.hagar.is/fjarfestar/skuldabrefautgafa/

Skila skal inn tilboðum á netfangið utbod@fossar.is fyrir klukkan 17:00 fimmtudaginn 21. mars 2024. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 2. apríl 2024.


Nánari upplýsingar veita:

Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki, sími: 522-4000, asgrimur.gunnarsson@fossar.is
Arnar Geir Sæmundsson, Fossar fjárfestingarbanki hf. arnar.saemundsson@fossar.is

Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga, geg@hagar.is