VÍS: Endanleg dagskrá og tillögur til aðalfundar árið 2024


Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf. hefur boðað til aðalfundar sem haldinn verður í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, 108 Reykjavík, fimmtudaginn 21. mars kl. 16:00, en auk þess verður boðið upp á rafræna þátttöku. Endanleg dagskrá fundarins er í viðhengi.  

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja aðalfundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig á vefsíðunni

Frestur til að skrá sig er til kl. 16:00 þann 19. mars, eða tveimur dögum fyrir aðalfund. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á.

Opnað verður fyrir forkosningu um þær tillögur sem liggja fyrir fundinum frá kl. 12 til kl. 14 á fundardegi. Nánari leiðbeiningar um forkosningu er að finna í leiðbeiningum um rafræna þátttöku á vefsíðu félagsins.

Í kjölfar ábendingar frá hluthafa hefur grein 3.3. í starfskjarastefnu félagsins verið lagfærð með því að fjarlægja síðustu setningu fyrstu málsgreinar þar sem hún telst óþörf. Breytinguna má sjá í meðfylgjandi uppfærðri starfskjarastefnu.  

Þá hefur jafnframt verið ákveðið að fjarlægja liði iv) og v) í tillögu um heimild til kaupa á eigin hlutum í dagskrárlið 11 þar sem bent hefur verið á að skilja megi orðalag þeirra þannig að þeir feli í sér sjálfstæðar heimildir til hlutabréfakaupa. Orðalagið hefur verið uppfært og efnisatriði liðar v) tekið út. Breytingar á tillögunni má sjá í meðfylgjandi uppfærðu tillöguskjali. 

Öll gögn vegna aðalfundar, s.s. tillögur stjórnar til aðalfundar, starfskjaraskýrsla ársins 2023, skýrsla tilnefningarnefndar og enskar þýðingar fundargagna hafa verið gerð aðgengileg á vefsíðu félagsins

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri, í s. 660 5260 eða með tölvupósti fjarfestatengsl@vis.is 

 

Viðhengi



Attachments

Endanleg dagskrá og tillögur til aðalfundar_2024 Tillögur aðalfundar VÍS 2024_uppfært Starfskjarastefna_uppfært 14.3.2024