Leiðrétting: Hagar hf.: Útboð á víxlum 21. mars 2024


Í fréttatilkyninngu sem birt var þann 14. mars kom fram að uppgjör viðskipta færi fram 2. apríl 2024. Það á ekki við heldur mun uppgjör viðskipta fara fram þann 27. mars 2024. Þá býðst eigendum víxilsins HAGA240328 að selja bréf í flokknum samhliða útboðinu til útgefanda. Sjá leiðrétta tilkynningu fyrir neðan.

Hagar hf. efna til útboðs á víxlum fimmtudaginn 21. mars 2024. Boðnir verða til sölu víxlar í nýjum 6 mánaða flokki HAGA240925.

Í tengslum við útboðið býðst eigendum flokksins HAGA240328 að selja bréf í flokknum til útgefanda. Hreint verð sem fjárfestum býðst að selja víxilinn á er 100,0. Uppgjör viðskipta fer fram 27. mars 2024.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útboðinu og kynningu þess fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og sótt verður um skráningu þeirra í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Útboðið undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu víxlaflokksins og töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins: https://www.hagar.is/fjarfestar/skuldabrefautgafa/

Skila skal inn tilboðum á netfangið utbod@fossar.is fyrir klukkan 17:00 fimmtudaginn 21. mars 2024. Uppgjör viðskipta fer fram miðvikudaginn 27. apríl 2024.

Nánari upplýsingar veita:

Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki hf., sími: 522 4000, asgrimur.gunnarsson@fossar.is
Arnar Geir Sæmundsson, Fossar fjárfestingarbanki hf., sími 522 4000, arnar.saemundsson@fossar.is

Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., geg@hagar.is