Síminn hf. - Stækkun á skuldabréfaflokki


Síminn hf. hefur lokið stækkun á skuldabréfaflokknum SIMINN 26 1.

SIMINN 26 1 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber breytilega vexti tengda eins mánaðar REIBOR vöxtum auk 1,3% vaxtaálags með lokagjalddaga þann 30. júní 2026. Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.500 m.kr. á pari (genginu 100,0).

Útboðið var framkvæmt í einkaútgáfu (e. private placement) og undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði.

Áður hafa verið gefin út skuldabréf að nafnvirði 1.500 m.kr. í flokknum og verða því útistandandi 3.000 m.kr. að nafnvirði eftir uppgjör viðskiptanna..

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 25. mars 2024.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.


Nánari upplýsingar veita:

Ásgrímur Gunnarsson, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki, sími: 522 4000, netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is
Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki, sími: 522 4000, netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is
Óskar Hauksson, fjármálastjóri, oskarh@siminn.is