Hagar hf.: Frá tilnefningarnefnd vegna aðalfundar Haga hf. 2024


Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn fimmtudaginn 30. maí 2024.

Þeim hluthöfum sem vilja eiga fund með tilnefningarnefnd eða koma skilaboðum á framfæri við nefndina í aðdraganda aðalfundar 2024 er bent á að hafa samband við tilnefningarnefnd eigi síðar en 12. apríl nk. á netfangið tilnefningarnefnd@hagar.is.

Þeim sem vilja gefa kost á sér til setu í stjórn Haga hf. er bent á að tilkynna það skriflega til tilnefningarnefndar Haga hf. eigi síðar en 19. apríl 2024 á netfangið tilnefningarnefnd@hagar.is. Nauðsynlegt er að frambjóðendur notist við framboðseyðublað sem finna má í viðhengi og á vefsíðu Haga en þar þarf meðal annars að upplýsa um bakgrunn og hæfi frambjóðanda, auk þess að gera grein fyrir hvernig frambjóðandi uppfyllir skilyrði sáttar Haga hf. við Samkeppniseftirlitið frá september 2018.

Auk framboðseyðublaðs má í viðhengi finna nánari upplýsingar um viðmið tilnefningarnefndar við mat á frambjóðendum. Upplýsingarnar má einnig finna á vefsíðu Haga hf., www.hagar.is/fjarfestar/hluthafafundir/2024/.

Upplýst skal að núverandi stjórnarmenn Haga hf. gefa allir kost á sér til endurkjörs.

Tillögur tilnefningarnefndar um frambjóðendur til stjórnar verða tilkynntar þann 9. maí nk.


Tilnefningarnefnd Haga hf.

Viðhengi



Attachments

Framboðseyðublað til stjórnarsetu 2024 - ritfært Viðmið tilnefningarnefndar við mat á frambjóðendum 2024