Reykjavíkurborg semur við Fossa fjárfestingabanka hf. um umsjón með útgáfu á nýjum stuttum skuldabréfaflokki


Reykjavíkurborg óskaði eftir tilboðum frá markaðsaðilum í umsjón með útgáfu á nýjum óverðtryggðum skuldabréfaflokki til skemmri tíma. Ósk um tilboð er í samræmi við samþykkt borgarráðs frá 29. febrúar sl. Niðurstaða á yfirferð tilboða var að semja við Fossa fjárfestingarbanka hf. um umsjón með útgáfu á nýjum óverðtryggðum skuldabréfaflokki til skemmri tíma.

Nánari upplýsingar gefur:
Halldóra Káradóttir, sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs
netfang: halldora.karadottir@reykjavik.is
Sími: 411-1111