Reykjavíkurborg semur við Landsbankann um umsjón með stofnun nýs langs skuldabréfaflokks


Reykjavíkurborg óskaði eftir tilboðum frá markaðsaðilum í umsjón, ráðgjöf og útgáfu á nýjum löngum verðtryggðum skuldabréfaflokki. Ósk um tilboð er í samræmi við samþykkt borgarráðs frá 29. febrúar sl. Niðurstaða á yfirferð tilboða var að semja við Landsbankann hf. um umsjón, ráðgjöf og útgáfu á nýjum löngum verðtryggðum skuldabréfaflokki.

Nánari upplýsingar gefur:
Halldóra Káradóttir, sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs
netfang: halldora.karadottir@reykjavik.is
Sími: 411-1111