Reginn hf.: Framlenging gildistíma valfrjáls tilboðs í hlutafé Eikar fasteignafélags hf. til 21. maí 2024


Vísað er til opinbers tilboðsyfirlits, dags. 10. júlí 2023, sbr. viðauka, dags. 14. september 2023, í tengslum við valfrjálst tilboð Regins hf. („Reginn“ eða „félagið“) í allt hlutafé Eikar fasteignafélags hf. („Eik“) („valfrjálsa tilboðið“).

Með vísan til 6. mgr. 103. gr. laga nr. 108/2007 um yfirtökur hefur Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands samþykkt beiðni Regins um að framlengja gildistíma valfrjálsa tilboðsins um fimm vikur frá 15. apríl nk. eða fram til kl. 13:00 þann 21. maí 2024.

Umrædd framlenging á gildistíma valfrjálsa tilboðsins kemur til í ljósi þess að frestur Samkeppniseftirlitsins til að ljúka rannsókn á samrunanum hefur verði framlengdur um 20 virka daga. Tímafrestur Samkeppniseftirlitsins hefur verið framlengdur til 7. maí nk. Með hliðsjón af því og lögbundnum málsmeðferðarfrestum í samrunamálum þótti rétt að óska eftir framlengingu á gildistíma valfrjálsa tilboðsins um fimm vikur. 

Framlenging á gildistíma valfrjálsa tilboðsins hefur engin áhrif á þá sem þegar hafa samþykkt tilboðið og þurfa þeir hluthafar Eikar sem þegar hafa samþykkt tilboðið ekki að aðhafast neitt.

Framlenging á gildistímanum felur ekki í sér breytingar á valfrjálsa tilboðinu.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Regins hf., sími: 821 0001