Síminn hf. - Lækkun hlutafjár


Á aðalfundi Símans hf. þann 14. mars 2024 var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins. Lækkunin nemur kr. 125.000.000 að nafnverði og tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með kaupum á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlunum. Eftir lækkun verður hlutafé samtals kr. 2.650.000.000.

Beiðni hefur verið send á Nasdaq og mun lækkunin verða framkvæmd miðvikudaginn 27. mars 2024.

Vísað er til tilkynningar félagsins sem birtist í fréttakerfi Kauphallar þann 14. mars sl. þar sem greint er frá niðurstöðum aðalfundar.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.