REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 12


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 19. mars 2024 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 20. mars 2024. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 12. viku 2024 keypti Reitir fasteignafélag hf. 900.000 eigin hluti að kaupverði 71.150.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
20/3/2410:22100.00078,007.800.000100.000
20/3/2411:13100.00078,007.800.000200.000
20/3/2415:22100.00079,007.900.000300.000
20/3/2415:23100.00079,007.900.000400.000
21/3/2410:24100.00078,507.850.000500.000
21/3/2413:30100.00079,007.900.000600.000
22/3/2410:46100.00080,008.000.000700.000
22/3/2411:43100.00080,008.000.000800.000
22/3/2413:25100.00080,008.000.000900.000
Samtals 900.000 71.150.000900.000


Reitir hafa nú keypt samtals 900.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 16,2% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 71.150.000 kr. sem samsvarar 14,2% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.550.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna.

Frá árslokum 2023, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 11.350.000 eigin hluti fyrir 928.050.000 kr.

Reitir eiga nú samtals 900.000 eigin hluti, eða um 0,13% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 710.650.000.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.