Síminn hf. – Flöggun eigin hlutir


Í dag, 27. mars 2024, var hlutafé Símans hf. lækkað um 125.000.000 hluti í samræmi við ákvörðun aðalfundar frá 14. mars sl. Lækkunin tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með kaupum á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlunum. Síminn hefur sömuleiðis í dag afhent 101.153.146 hluti vegna kaupa félagsins á öllu hlutafé í BBI ehf., Dengsa ehf. og Billboard ehf. Með þessum breytingum fór hlutfall eigin bréfa Símans hf. undir 5% af heildarfjölda hluta.

Síminn hf. átti 277.499.000 eigin hluti fyrir þessar aðgerðir en á að þeim loknum 51.345.854 hluti eða sem nemur 1,938% af útgefnum hlutum í félaginu.

Tilkynning þessi er gerð með vísan til 29. gr. (Flöggunarskylda vegna eigin hluta) laga nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans (fjarfestatengsl@siminn.is).