Festi hf.: Birting uppgjörs 1. ársfjórðungs 2024 þann 23. apríl 2024 og afkomufundur þann 24. apríl


Festi birtir uppgjör sitt fyrir 1. ársfjórðung 2024 eftir lokun markaða þriðjudaginn 23. apríl næstkomandi.

Afkomufundur með markaðsaðilum 24. apríl kl. 8:30.

Afkomufundur fyrir markaðsaðila verður haldinn miðvikudaginn 24. apríl 2024 kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi. Á fundinum munu Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi, kynna afkomu samstæðunnar á fyrsta ársfjórðungi og svara spurningum.

Fundinum verður einnig streymt beint á vefsíðu félagsins þar sem skráning á fundinn fer jafnframt fram: https://www.festi.is/cc/uppgjor-1f-2024. Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur með því að senda tölvupóst á netfangið fjarfestatengsl@festi.is. Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.

Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: https://www.festi.is/r/fjarhagsupplysingar.