Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 17


Í 17. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 850.000 eigin hluti að kaupverði 3.431.596 kr. í samræmi við eftirfarandi: 

Dagsetning  Tími  Keyptir hlutir  Viðskiptaverð (gengi)  Kaupverð (kr.) 
26.04.2024  15:54  850.000  4,04  3.431.596 
Samtals    850.000    3.431.596 

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025. 

Nova Klúbburinn átti enga eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 850.000 hluti, eða um 0,023% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 3.431.596 kr. 

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir. 

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is