Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 19


Í 19. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.971.000 eigin hluti að kaupverði 11.683.750 kr. í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
06/05/202309:36:40527.000     4.012.113.270
06/05/202310:33:17457.000     4.001.828.000
07/05/202309:32:24518.000     3.922.030.560
07/05/202309:52:18476.000     3.881.846.880
08/05/202310:21:57688.000     3.882.669.440
08/05/202311:55:42305.000     3.921.195.600    
Samtals 2.971.000 11.683.750

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.

Nova Klúbburinn átti 4.309.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 7.280.000 hluti, eða um 0,198% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 29.073.490 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is